Samanburður · Hvaða staðreyndir eru sannar?

Það sem er sagt og það sem stenst skoðun

Fullyrðingar um ESB-aðild bornar saman við gögn og greiningu Evrópumálanna – kort fyrir kort.

islandogevropa.is evropumalin.is
í dreifingu á samfélagsmiðlum – fullyrðing
Krónan í stað evru kostar heimili, fyrirtæki og hið opinbera 441 milljarð króna á ári.
evropumalin.is – greining
Forsendur myndarinnar miða við vexti á nýjum lánum 2026 en leggja þá á allan skuldastofninn, 8.201 ma.kr., þótt meginhlutinn beri eldri, fasta eða verðtryggða vexti langt undir 8,8%. Verðbólgumunur er líka talinn sem vaxtakostnaður, því 8,8% standa á 4,5% verðbólgu og 3,35% á um 2%, svo raunvaxtamunurinn er nær 3 prósentustigum en 5,45. Stór hluti afgangsins færist til íslenskra lífeyrissjóða og sparifjáreigenda í stað þess að tapast úr landi. Munur er til staðar en aðeins brot af 441 milljarði.
~3 prósentustig