Fullyrðingar um ESB-aðild bornar saman við gögn og greiningu
Evrópumálanna – kort fyrir kort.
islandogevropa.is evropumalin.is
í dreifingu á samfélagsmiðlum – fullyrðing
Krónan í stað evru kostar heimili, fyrirtæki og hið opinbera 441 milljarð króna á ári.
evropumalin.is – greining
Forsendur myndarinnar miða við vexti á nýjum lánum 2026 en leggja þá á allan skuldastofninn, 8.201 ma.kr. – meginhlutinn ber eldri, fasta eða verðtryggða vexti langt undir 8,8%. Þá er verðbólgan tvítalin: 8,8% standa á 4,5% verðbólgu, 3,35% á um 2%, svo raunvaxtamunurinn er nær 3 prósentustigum en 5,45. Stór hluti afgangsins er tilfærsla til íslenskra lífeyrissjóða og sparifjáreigenda – ekki tap þjóðarbúsins. Raunverulegur munur er til staðar, en brot af 441 milljarði.